Gildi Verkvals
Verkval ehf starfar með viðskiptavinum sínum af vinsemd og virðingu og starfsmenn fyrirtækisins starfa eftir gildunum.
Þjónusta | Samvinna | Lausnir
Verkval
Verkval ehf er einkarekið fyrirtæki sem stofnað var á Akureyri 1987 og hefur verið í sömu eigu alla tíð síðan. Fyrirtækið hefur þróast í tímans rás og safnað að sér mikilli reynslu, þekkingu og viðskiptavild. Það þjónustar nú fjölda sveitarfélaga og fyrirtækja á norðurlandi frá Dalabyggð austur til Þórshafnar, auk þess að þjónusta Veitur á Akranesi og í Borgarnesi.
Áherslur fyrirtækisins í dag er rekstur öflugra dælubíla sem annast hvers kyns dæluvinnu, holræsahreinsun, rotþróahreinsun, stíflulosun og önnur sérhæfð verk svo sem tankahreinsun, skipaþjónustu, rótarskurð og lagnafræsingu. Lagnahópur fyrirtækisins hefur yfir að ráða tveimur gröfum og tækjum til lagnamyndunar, staðsetningar lagnabilunar auk búnaðar til að saga steypu og malbik og brjóta veggi. Til stendur að bæta lagnafóðrun við þjónustuna innan tíðar og þá opnast nýjir möguleikar til lagnaviðgerða eldri húsa með lágmarksraski.
Fyrirtækið starfar í eigin húsnæði að Miðhúsavegi 4 á Akureyri og hefur á að skipa um 10 manna harðsnúnu liði starfsmanna sem ganga í þau verk sem vinna þarf með samvinnu og þjónustulund að leiðarljósi. Það má leita til okkar hvenær sem er sólarhringsins, árið um kring.
Símar fyrirtækisins eru 461-1172 og 892-3762 og netföngin eru verkvalehf@simnet.is og verkval@verkval.is
Bílar og tæki
Verkval hefur í flota sínum 5 dælubíla, þar af tvo mjög öfluga holræsabíla auk tveggja rotþróabíla en allir bílar geta annast stíflulosun og hvers kyns almenn verkefni.
Tveir bílar eru sérhæfðir rotþróabílar með skiljubúnaði sem skilur vatnið frá úrgangi þróarinnar og skilar því til baka í þróna. Slíkt gagnast vel sveitarfélögum og sparar akstur og tíma. Þriðji bíllinn af þessari gerð er tiltækur sem varabíll. Við þjónustum nú þegar allmörg sveitarfélög víðsvegar um landið og höfum góða reynslu á þessu sviði.
Meðal annara tækja má nefna tvær gröfur til minni og miðlungs stórra frárennslisverka, múrbrjót, loftpressu og steypusög ef brjóta þarf gólf eða vegg, auk margra fleiri tækja svo sem færanlega öfluga rafstöð, bensínvatnsdæla og kjarnaborvél.
Myndavélar eru lykilatriði í greiningu lagnaskemmda. Þess vegna er Verkval með úrval véla af alls kyns stærðum sem henta stórum sem smáum verkefnum. Algengustu myndavélarnar eru 8 mm haus x 6 m lengd, 29 mm haus x 30 m lengd, 56 mm haus x 60 m lengd og flaggskipið: fjarstýrður skriðdreki með 200 metra kapli sem getur myndað lagnir frá 150 mm upp í 1000 mm. Stærri vélarnar hafa fullkomið staðsetningartæki sem mælir nákvæma staðsetningu og dýpt sem getur sparað mikinn kostnað í viðgerðarframkvæmdum. Búnaðurinn getur tekið upp myndband og ljósmyndir sem hægt er að fá á USB mola sé þess óskað.
Starfsfólk
Gunnar Rafn Jónsson, stjórnarformaður og eigandi
Jónas Halldór Sigurðsson, framkvæmda- og fjármálastjóri
Jón Árni Garðarsson, bílstjóri og tækjamaður (verksstjóri)
Björgvin Árnason, bílstjóri og tækjamaður (gagnaumsýsla)
Dzmitry Vitkouski, bílstjóri og tækjamaður
Robert Bystrek, bílstjóri og tækjamaður
Auðunn Þórarinsson, lagnamyndun og tæknimaður
Baldvin Jónsson, lagnamyndun og stíflur