Fitugildra er tankur sem settur er innan eða utandyra við veitingastaði og stóreldhús. All frárennsli eldhússins skal tengja við gildruna, bæði vaska, niðurföll og uppþvottavélar. Fita sem berst með frárennslinu flýtur upp í gildrunni og verður eftir meðan umframvatn heldur áfram út í götukerfi eða annað frárennsli. Smám saman fyllast fitugildrur af fljótandi og storknandi fitu og þurfa tæmingu sem ræðst af tilfallandi magni, allt frá 3ja mánaða fresti til einu sinni á ári. Ekki er mælt með lengri tíma, þar eð hluti fitunar harðnar og þránar í gildrunni.
Fita er skaðvaldur og stífluvaldur í öllum frárennsliskerfum og þess vegna þarf að fjarlægja hana og farga á viðeigandi hátt. Verkval ehf hefur komið sér upp tækni og búnaði til að skilja vatn frá fitunni og koma henni í eðlilegan lífrænan förgunar farveg. Fitu úr fitugildrum er ekki hægt að nýta í lífdiesel sökum óhreininda, en steikarolíu má hinsvegar nýta á þann hátt.